Skilmálar

Pantanir
Salka tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Salka Verslun áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Upplýsingar um seljanda:
Salka Verslun
Kt. 450219-1180
Bárustíg 9
900 Vestmannaeyjum 
S: 481-1617
salkaverslun@gmail.com

 

Verð
24% virðisaukaskattur er innifalinn í verði vörunnar í vefverslun  en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Öll verð eru birt með fyrirvara um myndbrengl eða prentvillur og áskilur Salka Verslun sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp. Ef varan er ekki til á lager látum við þig vita og endurgreiðum hafi greiðsla farið fram.  

Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. Sendingakostnaður er Kr. 995. (Sendingarkostnaður er mismunandi eftir fyrirtækjum. Ef að verslað er fyrir t.d. 10.000,- eða meira þá fellur sendingarkostnaðurinn niður.)

Greiðslumöguleikar
Hægt er að greiða með greiðslukorti,millifærslu eða símgreiðslu. Vinsamlegast sendið tölvupóst á salkaverslun@gmail.com ef óskað er eftir að greiða með millifærslu.

 Afhending vöru
Þegar þú verslar hjá Sölku Verslun getur þú valið á milli þess að sækja pöntunina í Vestmannaeyjum næsta virka dag eða fá hana senda á næsta pósthús með Póstinum.
Ef þú velur að sækja pöntun í Vestmannaeyjum munum við hafa samband hvar og hvenær hægt verður að nálgast vöruna.
Ef pöntunin þín er send með Póstinum fer hún í póst 24-48 klst eftir að pöntun hefur verið gerð svo lengi sem að varan sé til og kreditkortið fæst staðfest.

Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Salka Verslun ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Salka Verslun til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf. Frí heimaending er á pöntunum 1.000 kr og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.

Þú munt síðan fá staðfestingu á komu vörunnar með sms skilaboðum eða með tilkynningu þar sem fram kemur á hvaða pósthúsi hægt er að nálgast sendinguna.
Ef um sendingar út fyrir landsteinana er að ræða geta tollar og gjöld viðkomandi lands bæst við vöruverðið sem er ekki innifalið í verðunum okkar hér á heimasíðunni.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Vörum sem eru pantaðar af netinu er hægt að skila innan 14 daga og fá endurgreiðslu. Skilyrði er að varan sé óskemmd í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgi. Sendingarkostnaður er ekki endurgreiddur nema við eigi og viðskiptavinur hafi óskað eftir afhendingarmáta sem telja má ódýrastan. Viðskiptavinir skulu bera beinan kostnað af því að skila vöru.
Viðskiptavinur skal senda tölvupóst á salkaverslun@gmail.com áður en vöru er skilað. 

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og viðskiptavinur stendur straum af sendingarkostnaði við vöruskil.

Til þess að ganga frá skilum þurfum við að sjá kvittun sem staðfestingu á kaupum, hana má senda á salkaverslun@gmail.com

Þegar vöru sem hefur verið skilað er komin til okkar og verið skoðuð munum við senda þér tölvupóst til að tilkynna þér að varan sé móttekin í verslun. Við munum einnig tilkynna þér um höfnun eða samþykki endurgreiðslunnar. Ef endurgreiðslan er samþykkt mun hún fara fram eins og upprunalega var greitt fyrir vöruna og berast innan fárra daga. Ef endurgreiðsla birtist ekki innan 10 daga frá því að við fengum vöruna afhenta skaltu fyrst hafa samband við kreditkortafyrirtækið þitt og eða banka vegna þess að það getur tekið smá tíma að birtast. Ef þú hefur þegar gert þetta og endurgreiðslan hefur ekki borist skaltu hafa samband við okkur á salkaverslun@gmail.com
Því miður er hvorki hægt að skipta né skila vöru sem keypt er á útsölu eða á öðru tilboði.

Til þess að skila vöru skal senda hana til:
Salka Verslun
Bárustígur 9
900 Vestmannaeyjar
Ísland

Að skipta og skila vöru

Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Þú ert ábyrg(ur) fyrir að borga sendingarkostnað þegar vöru er skilað. Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur. Það getur verið mismunandi eftir búsetu hvenær ný vara kemur til þín ef þú hefur skipt vöru. Ef þú ert að senda vöru aftur til okkar þá berð þú ábyrgð á sendingarmátanum og því gæti í sumum tilfellum verið sniðugt að nota rekjanlega sendingu þar sem við getum ekki ábyrgst að varan berist til okkar.

 Viðskiptavinir skulu tilkynna um ákvörðun sína um að falla frá samningi með ótvíræðri yfirlýsingu þar um innan 14 daga frestsins, en það er m.a. hægt að gera með því að senda tölvuskeyti á netfangið salkaverslun@gmail.com eða senda Sölku Verslun staðlað uppsagnareyðublað sem er að finna á vef Neytendastofu www.neytendastofa.is (þar sem jafnframt er að finna frekari upplýsingar um skilarétt), en í kjölfarið skal Salka  láta viðskiptavini í té kvittun fyrir móttöku uppsagnarinnar. Vakin er athygli á því að sönnunarbyrði um að réttur til að falla frá samningi sé nýttur í samræmi við ákvæði 19. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016, hvílir á viðskiptavininum, sbr. g-liður 1. mgr. 5. gr. laganna.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 46/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða móttaka vöru á sér stað.

 

Persónuvernd

Salka Verslun virðir friðhelgi persónuupplýsinga um viðskiptavini sína. Með því að heimsækja vefinn okkar lýsir þú þig samþykkan þeim hefðum sem lýst er í núverandi yfirlýsingu um persónuvernd og öryggi. Ef þú hefur áður heimsótt vefinn okkar vinsamlega kynntu þér yfirlýsinguna að nýju til að fullvissa þig um að þú þekkir núverandi skilmála. Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi öryggi og trúnað við meðferð upplýsinga um þig geturðu haft samband við okkur með tölvupósti á salkaverslun@gmail.com

Persónulegar upplýsingar sem við söfnum

Mögulegt er að við söfnum persónugreinanlegum upplýsingum um þig, svo sem nafni, heimilisfangi, netfangi, símanúmeri og kreditkortanúmeri, í tengslum við afgreiðslu á pöntun frá þér eða vegna annarra samskipta við þig. Til dæmis skráum við þær persónugreinanlegu upplýsingar sem nauðsynlegar eru til að koma til skila þeirri vöru sem þú kaupir. Einnig fjármálatengdar upplýsingar, svo sem kreditkortanúmer og heimilisfang vegna reiknings, og einstaklingsupplýsingar, svo sem netföng, heimilisfang, símanúmer og viðtökustað vörusendingar. Fjármálatengdar upplýsingarnar eru nýttar eingöngu til að innheimta greiðslu fyrir þá vöru sem þú kaupir. 

Ef þú skráir þig á póstlista eða gefur upp netfangið þitt sendum við þér fréttabréf Sölku Verslun.  Ef þú færð nú þegar tölvupósta frá fyrirtækinu en vilt hætta að fá þá er hægt að senda okkur póst á salkaverslun@gmail.com

Neðst á öllum markpósti sem Salka sendir á póstlista sinn er einnig hnappur sem býður upp á að láta fjarlægja það netfang sem pósturinn var sendur á af póstlistanum.

 

Ábyrgðarskilmálar

Ef vara telst gölluð munum við gera við hana eða skipta henni eða endurgreiða, allt án kostnaðar fyrir viðskiptavini.  Athugið að ábyrgðin nær ekki til tjóns sem hlýst af slysi, þvotti, vanrækslu, venjulegu sliti eða eðlilegu litatapi sem verður við notkun og eða sökum aldurs vörunnar.

Við tökum á móti öllum vörum sem eru framleiddar og/eða seldar í salkaverslun.is til viðgerðar eða breytinga á Bárustíg 9, 900 Vestmannaeyjum.

Svo hægt sé að meta hvort vara sé gölluð þarf að koma með hana á Bárustíg 9, 900 Vestmannaeyjum eða senda mynd á salkaverslun@gmail.com. Við leggjum áherslu á að vörur séu hreinar áður en komið er með þær í viðgerð, óhreinar vörur/flíkur eru endursendar án viðgerðar. 

 

 

Upplýsingar um seljanda:

Salka Verslun
Kt. 450219-1180
Bárustíg 9
900 Vestmannaeyjum 
S: 481-1617
salkaverslun@gmail.com

x